Google Sites er heimasíðuforritið í Google. Sites er bráðsniðugt í alls konar verkefnavinnu eins og t.d. rafrænar ferilmöppur, verkefnaskil og fyrir kennara sem búa til mikið af kennslumyndböndum og vilja hafa þau aðgengileg fyrir nemendur. Hægt er að stilla hverjir geta séð síðurnar sem er bráðsniðugt fyrir vinnu nemenda.
Að byrja með Sites
Hvar finnum við Google Sites og hvernig búum við til nýja síðu og stillum útlit á síðunni.
Sites, sýsla með síður
Hvernig við setjum inn texta og myndir, uppsetning síðuhluta. Búa til nýjar undirsíður. Eyða síðuhlutum.
Sites, sýsla með síður framhald
Hvernig við vinnum með síðuna. Setjum inn fellitexta, skoðum síðuna eins og hún birtist á netinu, eyðum síðuhlutum.
Sites, birta síðu
Hvernig við birtum síðuna þegar við erum tilbúin og hvernig hægt er að stilla síðuna svo aðeins ákveðnir aðilar hafi aðgang. Notum þetta mikið þegar við erum að nýta Sites í ferilmöppur nemenda.